Egypska kauphöllin
Egypska kauphöllin
Skuldatryggingaálag á fimm ára skuldabréf ríkissjóðs lækkað mikið frá því á þriðjudag. Nú mælist álagið 252 punktar samanborið við 297 punkta á þriðjudag. Í júníbyrjun fór álagið lægst í 200 punkta og frá þeim tíma hefur það hæst farið í 304 punkta.

Sveiflurnar eru í takt við óróa á mörkuðum. Almennt dregur ú skuldatryggingaálagi í uppsveiflum. Allar helstu hlutabréfavísitölur Evrópu hafa hækkað það sem af er degi eftir að hafa tekið snarpa dýfu í gær. Sveifla á skuldatryggingaálagi er því í takt við það.