Hlutabréfamarkaðir í Evrópu lækkuðu talsvert í dag og segir Reuters fréttastofan að nokkur órói ríki enn á fjármálamörkuðum þrátt fyrir stýrivaxtalækkanir margra af stærstu seðlabönkum heims.

FTSEurofirst 300 vísitalan lækkaði í dag um 6,1% og hefur, að sögn Reuters, ekki verið lægri frá því desember árið 2003.

Vísitalan hafði um tíma í dag lækkað um 8%.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 5,2%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 7,6% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 6,1%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 6% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 5,5%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 5,1%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 6,4% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 6,6%.