Nýtt fasteignamat verður birt nú seinna í mánuðinum og sveitarfélög geta þurft að samræma viðbrögð ef það lækkar mjög mikið. Þetta kom fram á samráðsfundi sveitarfélaga um rekstrarvanda þeirra sem haldinn var í gær. Á fundinum kom fram sú skoðun að bregðast þurfi við til lengri tíma og menn standa frammi fyrir því að fækka stöðugildum í sveitarfélögunum.
Þannig kom fram að mörg sveitarfélög hafa þegar ákveðið að draga úr þjónustu og endurskoða gjaldskrár. Nefnd var stytting opnunartíma leikskóla og íþróttahúsa. Fram kom sú skoðun að sveitarfélögin séu komin lengra en ríkið í raunverulegum niðurskurði og hagræðingaraðgerðum.
Einnig kom fram í máli sveitarstjórnarmanna að menn verði að vera samstíga innan hvers sveitarfélags og láta af pólitísku karpi meðan tekist er á við mesta vanda sem sveitarstjórnir í landinu hafa staðið frammi fyrir.