Hlutabréf í Asíu og Eyjaálfu hækkuðu almennt í dag þar sem markaðir voru opnir, en lokað var í Japan. Mikil lækkun varð hins vegar á árinu í heild eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. Af helstu mörkuðum varð versta útkoman á árinu í Sjanghæ í Kína þar sem úrvalsvísitalan lækkaði um tvo-þriðju hluta. Nýja-Sjáland hélt einna best velli en þar lækkaði markaðurinn engu að síður um þriðjung.