Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur hækkað afkomuspá sína fyrir árið í ár.

Fyrri spá gerði ráð fyrir svipuðum hagnaði og í fyrra. Talsvert betri sala veldur hækkuninni nú. Góð sala í Bandaríkjunum er helsta ástæða góðrar afkomu Ford, einnig góð sala í Asíu auk  minna taps í Evrópu.

Hlutabréf Ford hafa hækkað um 72% á síðustu tólf mánuðum.