Sala á lúxusbílum er svipuð og hún var fyrir hrun. Um þetta er fjallað í Fréttablaðinu í morgun. Kemur fram í greininni að það sé 48% aukning á sölu lúxusbíla það sem er af þessu ári.

Fram kemur að það hafi selst 883 lúxusjeppar til einstaklinga það sem af er af árinu, miðað við 595 bíla á sama tíma í fyrra.

Haft er eftir markaðsstjóra BL í greininni að salan sé eins og milli áranna 2006 og 2007. Einnig er tekið fram í fréttinni að tekið sé minna af bílalánum en fyrir hrun.