Kauphöllin í samvinnu við íslenska leikjaframleiðendur, stóð fyrir  frumsýningu heimildarmyndarinnar Gameloading – rise of the indies í Bíó Paradís í gærkvöldi. Sýning heimildarmyndarinnar var í tengslum við Slush PLAY Reykjavík – þar sem aðilum sem tengjast leikjaiðnaðinum hér á landi var veitt innsýn inn í veröld óháðra leikjaframleiðenda.

Framleiðendur Gameloading eru Ástralarnir Lester Francois og Anna Brady. Heimildarmyndin fjallar um heim svokallaðra óháðra (e. indie) leikjaframleiðanda. Þar eru til umfjöllunar leikir þeirra, draumar og áhrif þeirra á leikjaiðnaðinn. Í myndinni er m.a. rætt við Davíð Helgason frá fyrirtækinu Unity. Það var Ágúst Freyr Ingason sem áður var aðstoðar forstjóri Latabæjar, en er nú ráðgjafi hjá Vertu, sem hefur verið í sambandi við kvikmyndagerðafólkið og stuðlaði að sýningunni hér á landi.

Ólafur Andri Ragnarsson stjórnarmaður íslenskra leikjaframleiðenda og stjórnarmaður Betware bauð gesti velkomna og talaði um að heildarvirði leikjaiðnaðarins væri í kringum 100 milljarðar USD og færi ört vaxandi. „Leikjaiðnaðurinn á Íslandi veltir 12 milljörðum íslenskra króna. En á bak við þá tölu eru rúmlega 500 störf, sem þýðir mikinn skalanleika. Með því að virkja hugvitið erum við ekki að ganga á náttúruauðlindir. Við erum ekki að ofveiða fiskinn okkar eða traðka á óspylltri náttúrunni. Við þurfum fleiri leikjafyrirtæki,“ sagði Ólafur Andri í gærkvöldi.