Hreyfingarskýrsla Íbúðalánasjóðs var birt nú í morgun. Samkvæmt henni virðist markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs hafa dregist töluvert saman. Samdráttur í innkomnum umsóknum um fasteignaveðbréf er 44% í september miðað við sama tíma í fyrra. Innkomnar umsóknir nú í september nema 434 samanborið við 778 umsóknir á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir umtalsverðan samdrátt í innkomnum umsóknum hefur útgáfan verið töluverð eða um 3,3 milljarðar samanborið við 3,8 milljarða á sama tíma í fyrra. Hins vegar liggja tiltölulega fáar umsóknir á bak við útgáfu fasteignaveðbréfa eða 600 umsóknir samanborið 893 á sama tíma í fyrra.

Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum KB banka. Þar segir enn fremur að meðal fasteignaveðbréfið hefur hækkað úr 4,2 milljónum í september í fyrra upp í 5,5 milljónir nú. Þetta gæti bent til þess að töluverðar uppgreiðslur eigi sér stað en líklegt er að í kjölfar lægri vaxta kjósi íbúðakaupendur að greiða upp eldri lán með útgáfu nýrra bréfa. Þannig virðist vera töluvert um það að einstaklingar hafi verið að endurfjármagna óhagstæðari eldri lán með útgáfu nýrra. Einnig er ljóst af tölum frá Fasteignamati ríkisins að velta á fasteignamarkaði hefur aukist mikið að undanförnu og var velta á fasteignamarkaði um 4 milljarðar í síðastliðinni viku en velta hefur að meðaltali legið milli 2,5 til 3 milljarða á viku það sem af ári. Í september hefur velta á fasteignamarkaði numið 9 milljörðum, Ef gert er ráð fyrir um 70% veðsetningarhlutfalli er markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs því um 50% nú í september. Þannig hefur lækkun vaxta leitt til aukinnar veltu á fasteignamarkaði auk þess er líklegt að töluverðar uppgreiðslur séu nú til staðar.