Gengi bréfa bresku verslunarkeðjunnar Woolworths hefur hækkað um tæp 2% í miklum viðskiptum í dag.

Getgátur eru um að Baugur, sem áður hefur verið orðaður við Woolworths, hafi verið að kaupa í félaginu. Baugur er einnig orðaður við breska súkkulaðiframleiðandann Thorntons, sem hafnaði kauptilboði í félagið í dag.

Velta með bréf í Woolworths í dag hefur verið fjórum sinnum meiri en vanalegt er. Ekki allir miðlarar eru sannfærðir um að Baugur sé að kaupa í félaginu.

Baugur var orðaður við hugsanlega yfirtöku á Woolworhts í fyrra.