Mikil velta var á skuldabréfamarkaði í dag, með bæði Íbúðabréf sem og Ríkisbréf, í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabanka Íslands.

Þannig nam veltan 19,7 milljörðum króna í dag, þar af var velta með óverðtryggð ríkisbréf 11,2 milljarðar en velta með verðtryggð íbúðabréf 8,5 milljarðar króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag og hefur þá hækkað um 1,3% s.l. viku og 3,2% s.l. mánuð.