Velta með hlutabréf í Marel námu 808,4 milljónum króna í Kauphöll Íslands í dag. Gengi bréfanna hækkaði um 4,62% og skiptu bréf um hendur alls sautján sinnum. Lokagengi bréfanna var 124,5 krónur á hlut.

Aðeins voru stunduð viðskipti með hlutabréf í Marel og Icelandair Group í Kauphöllinni í dag. Velta með bréf Icelandair nam 111,8 milljónum og hækkuðu bréfin um 2,37%. Lokagengi dagsins er 5,18 krónur á hlut.