Velta með bréf í Icelandair Group í dag nemur 547 milljónum króna en mörkuðum hefur ekki verið lokað ennþá.

Gengi bréfa hefur lækkað um 2,62%, en í fyrstu viðskiptum dagsins hafði gengi bréfa fallið um 3,49%.

Gengi bréfa í öllum félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands í dag hefur lækkað í dag, að undanskildu HB Granda. Veltan þar er þó afar lítil, eða einungis um 15 milljónir.