Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,01% í dag og endaði í 1,828 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 39,46%.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair um 0,14% í 133 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa TM hækkaði um 0,43% í viðskiptum sem hljóðuðu upp á 109 milljónir króna. Einnig hækkaði gengi bréfa Reita um 0,66%, en þó í 57 milljón króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa VÍS um 0,76% í 1,65 milljarða króna viðskiptum. Þar á eftir kemur Marel, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 0,66% í viðskiptum upp á 119 milljónir króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 2,1 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 19,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 0,5 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,6% í dag í 19,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,8% í 4 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 15,6 milljarða viðskiptum.