Gengi hlutabréfa lækkaði almennt á nokkuð veltumiklum degi í Kauphöllinni í dag. Gengi hlutabréfa Marels lækkaði um 0,93%, Haga um 0,38%, Vodafone um 0,29%, Eimskips um 0,19% og Icelandair Group um 0,17%.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 0,38% og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,24%.

Veltan nam rétt rúmum 1,4 milljörðum króna. Þar munar mestu um viðskipti upp á tæpar 980 milljónir króna með hlutabréf Eimskips.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,40% og endaði hún í 1.219,81 stigi.