Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 1,44% í tiltölulega litlum viðskiptum í Kauphöllinni, rúmum 2,2 milljónum króna.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,56% í tæplega 140 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Viðskipti með bréf Icelandair Group nam rétt tæpum helmingi af veltu með hlutabréf Úrvalsvísitölufélaganna í dag.

Þá hækkaði gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,5% og fasteignafélagsins Regins um 0,24%.

Gengi bréfa Haga-stæðunnar lækkaði á sama tíma um 0,83%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,66% eftir daginn og endaði hún í rúmum 1.006 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 205 milljónum króna.