Mikil velta var með hlutabréf fasteignafélagsins Regins fyrir hádegi. Veltan nemur rúmum 1,4 milljörðum króna. Mestu munar um utanþingsviðskipti með 91 milljón hluta fyrir upphafi viðskipta í Kauphöllinni. Ekki liggur fyrir hver er á bak við viðskiptin. Þau hafa hins vegar ekki haft áhrif á gengi hlutabréfa fasteignafélagsins en gengi þeirra hefur ekkert breyst í dag.

Gengi hlutabréfa Regins stendur í 15,7 krónum á hlut. Það stóð í 11,6 krónum á hlut fyrir einu ári og hefur því hækkað um 35,3% síðan þá.