Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,47% í dag og endaði í 1.409,34 stigum.

Gengi bréfa Haga lækkaði mest eða um 1,46%. Einnig lækkuðu gengi bréfa Regins, Marel, Icelandair, Sjóvá, N1 og Reita. Mikil viðskipti voru með bréf Haga en þau námu 305 milljónum króna.

Gengi bréfa TM hækkuðu mest eða um 0,74% þá hækkuðu einnig gengi bréfa Granda um 0,52% og Össurar um 0,23%. Önnur félög stóðu í stað.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 662 milljónum króna.