Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins lækkaði um 0,83% í Kauphöllinni í dag í 75 milljóna króna veltu. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,65%.

Þá hækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,15%, , VÍS um 0,47% og Tryggingamiðstöðvarinnar um 0,17%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,07% og endaði hún í 1.142 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam rúmum 755 milljónum króna. Meirihluti hlutabréfaveltunnar skrifast á viðskipti með hlutabréf Icelandair Group en þau námu 550 milljónum króna.