BG Capital, sem er í eigu Baugs, seldi utanþings í morgun hlutabréf í FL Group fyrir 5,3 milljarða króna.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að ekki er um eiginlega sölu að ræða heldur er um að ræða fjármögnun, BG Capital ehf. heldur atkvæðisrétti, rétti til arðs og öðrum réttindum yfir hlutunum.