Mikill áhugi er hjá íslenskum fyrirtækjum fyrir sjávarútvegssýningunni í Brussel sem fer fram 24.-26. apríl á næsta ári að því er kemur fram í fréttabréfi Útflutningsráðs.

Á íslenska þjóðarbásnum síðastliðið vor sá Útflutningsráð Íslands um skipulagningu þátttöku rúmlega 20 fyrirtækja á tæplega 600 fermetra gólfsvæði.