Alls 1.118 umsóknir bárust um einungis 34 lóðir sem auglýstar voru í nýju hverfi í Þorlákshöfn, en umsóknarfrestinum lauk nú í  dag. Þetta kemur fram í Hafnarfréttum .

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss segir áhugann á lóðunum fara langt fram úr þeim væntingum sem hann hafði. „Við höfum sannarlega fundið fyrir vaxandi áhuga á samfélaginu hér og auðvitað sagði það ákveðna sögu þegar upp kom sú staða fyrir fáeinum dögum að ekki ein einasta fasteign var til sölu í sveitarfélaginu. Á sama tíma áttum við engar lóðir og það sennilega án fordæma að jafn stórt bæjarfélag og okkar sé uppselt. Áhuginn á lóðunum var því viðbúinn en ekki svona mikill.“

Lóðirnar eru í svokölluðu Vesturbergi sem verið er að byrja á við vesturenda Selvogsbrautar, en í fyrsta áfanga eru 4 smáfjölbýli, 18 raðhús og 13 einbýli og segir Elliði að ásóknin hafi verið nokkuð jöfn og mikil samkeppni um allar lóðir.