Kínverska hagkerfið mun líklega vaxa um 11,5% á þessu ári - sem yrði mesta hagvaxtaraukning frá því árið 1994 - sökum aukins útflutnings, fjárfestinga og einkaneyslu almennings. Þetta kemur fram í grein eftir háttsettan hagfræðing, Wang Xiaoguang, og er 0,5 prósentustigum hærra en fyrri spár gerðu ráð fyrir.
Xiaoguang telur að þessi mikli vöxtur í hagkerfinu muni halda áfram á fyrstu sex mánuðum næsta árs, vegna mikillar fjárfestingar þar í landi í aðdraganda Ólympíuleikanna, sem haldnir verða í Peking næstkomandi haust. Wang spáir því einnig að verðbólga á þessu ári muni mælast 4,3%, sem er töluvert umfram 3% verðbólgumarkmið stjórnvalda. Hins vegar muni verðbólga hjaðna á næsta ári og verða í kringum 3,5%.
Sjá erlendar fréttir Viðskiptablaðsins.