Velta á fasteignamarkaði höfuðborgarsvæðisins í septembermánuði var 36,2 milljarðar króna, en það er 12,2% hærri en í ágúst og 91,7% hærra en í september á síðasta ári. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga í september var 875, en það er 12,2% fleiri en í ágústmánuði og 63,9% fleiri en í september í fyrra.

Meðalupphæð hvers samnings í september sl. var 41,4 milljónir króna, viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,1 milljarði,  viðskipti með eignir í sérbýli 7,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 6,2 milljörðum króna.