Úrvalsvísitalan OMXI8 hækkaði um 32,94 stig á Nasdaq Iceland í júní. Í lok gærdagsins stóð hún í 1478,27 stigum en við opnun markaði þann 1. júní stóð hún í 1445,33 stigum. Hækkunin nam því 2,28%, sem jafngildir 27,3% 12 mánaða nafnávöxtun.

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 12,76% undanfarna sex mánuði, þar af 10,14% undanfarna þrjá mánuði. Sé litið aftur til seinustu tólf mánuða hefur hún hækkað um 30,13%.