Niðurstaða reksturs afþreyinga- og fjölmiðlafyrirtækisins 365 [ 365 ] á árinu 2007 varð tap að upphæð 2.283 milljónir króna að teknu tilliti til þeirrar starfsemi sem hefur verið lögð niður en eignarhlutur í Wyndeham var færður niður að fullu að fjárhæð 2.095 milljónir króna.

Rekstrarbati varð að upphæð 1.364 milljónir króna hjá félaginu ef horft er til afkomu fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi, en tap fyrir skatta nam 136 milljónum króna á árinu 2007. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) ársins 2007 nam 1.162 milljónum króna en á árinu 2006 var EBITDA tap 12 milljónir króna ef söluhagnaður dreifikerfis er undanskilinn.

Tekjur á árinu 2007 námu 12.381 milljón króna og jukust um tæp 12% á milli ára.

Innri vöxtur tekna (pro forma) var 10,5% frá fyrra ári.

Eigið fé var 4.545 milljónir króna og eiginfjárhlutfall var 31%.

Forstjóri segir félagið í sókn

„Rekstrarárangur á árinu 2007 sýnir að félagið er í sókn bæði er varðar tekjuvöxt og afkomu grunneininga sem staðfestir viðsnúning á rekstri félagsins frá fyrra ári," segir Ari Edwald forstjóri 365 í fréttatilkynningu.

„Rekstur fjölmiðlahlutans gekk vel á árinu og skilaði 900 milljónir króna í EBITDA sem er einn besti árangur sem náðst hefur í þessari starfsemi á Íslandi.  Sala og dreifing í afþreyingahluta rekstursins gekk vel á árinu en hinsvegar var framleiðsluhlutinn ekki að standa undir væntingum.  Í heild er rekstur félagsins þó mjög nærri þeim áætlunum sem kynntar hafa verið.  Við viljum gæta varfærni við mat á eignarhlutum félagsins og með því að færa niður eignahlut í Wyndeham Press Group að fullu hefur óvissu verið eytt og gegnsæi félagsins aukið.

Á árinu voru stigin mikilvæg skref í að styrkja fjárhagsstöðu félagsins með sölu á eignum og niðurgreiðslu skulda.  Veltufjárhlutfall félagsins er í árslok 0,87 og eiginfjárhlutfall 31%.  Stefnt er að því að auka fjárhagslegan styrk félagsins ennfrekar á næstunni með aukningu á hlutafé að söluverði um 1.500 milljónir króna en með þeirri ráðstöfun er verið að laga efnahag félagsins að núverandi starfsemi og búa í haginn fyrir áframhaldandi uppbyggingu," segir Ari.