Mikilvægt er að fækka sparisjóðum á Íslandi. Þannig náist fram hagræðing, aukin útlánageta og meiri arðsemi. Þetta segir Ragnar Birgisson, formaður Sambands íslenskra sparisjóða, í samtali við Morgunblaðið í dag. Í dag eru átta starfandi sparisjóðir í landinu en Ragnar segir markmiðið að fækka þeim niður í einn til þrjá.
Þá stendur til að opna sparisjóð á höfuðborgarsvæðinu. Ragnar segir að stór hluti viðskiptavina sparisjóða sé búsettur á höfuðborgarsvæðinu og eftirspurnin eftir sparisjóðsútibúi á svæðinu sé talsverð. Í þvi samhengi sé meðal annars horft til þess að útibúið verði ákveðin þjónustumiðstöð sparisjóða landsins, en það er hlutverk sem Sparisjóðsbanki Íslands, síðar Icebank, sinnti.
Ragnar segir jafnframt að með sameiningu verði hægt að auka markaðshlutdeild sparisjóða á fjármálamarkaði. Hlutdeildin nú sé einungis um 2% en var á tíma um 20%. Með opnun útibús í Reykjavík skapist tækifæri til að auka markaðshlutdeildina en Ragnar segir brýna þörf á því.