Ríkisendurskoðun bendir á að nú eru einungis í gildi þjónustusamningar við 7 af 74 öldrunarheimilum í landinu. Stofnunin telur mikilvægt að hraða þessari vinnu.

Árið 2013 benti Ríkisendurskoðun á að velferðarráðuneytið hefði einungis gert þjónustusamninga við 8 af 73 öldrunarheimilum í landinu. Stofnunin hvatti ráðuneytið til að bæta úr þessu og efla eftirlit sitt með þjónustu og rekstri heimilanna.

Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að samningagerð við öldrunarheimili og eftirlit með þjónustu þeirra og rekstri eru nú lögbundin verkefni Sjúkratrygginga Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá þeirri stofnun liggja fyrir drög að rammasamningi við hjúkrunarheimili sem sinna öldrunarþjónustu.

Áætlað er að búið verði að semja við heimilin á þeim grundvelli á þessu ári. Stofnunin bendir þó á að samningagerðin hefur gengið hægt og að mikilvægt sé að hraða þessari vinnu.