Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hyggst ekki taka til frekari skoðunar ráðstafanir íslenskra stjórnvalda í tengslum við aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta, sem varða frádrátt frá stöðugleikaskatti og framlag í samræmi við stöðugleikaskilyrði. Niðurstaðan er mikilvægur áfangi í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta sem kynnt var í júní á þessu ári. Þetta segir á heimasíðu fjármálaráðuneytisins .

Íslensk stjórnvöld upplýstu stofnunina fyrr á þessu ári um heimildir til frádráttar frá stöðugleikaskatti og um áætlanir um viðtöku stöðugleikaframlags. Þeim sjónarmiðum var jafnframt velt upp hvort í slíkum ráðstöfunum, sem tengdust fjármálagerningum starfandi banka og sparisjóða, gæti falist óbein ríkisaðstoð í skilningi 1. mgr. 61. gr. EES- samningsins.

Málinu er nú lokið með ákvörðun ESA um að aðhafast ekki frekar vegna þess, enda falli ráðstafanir í tengslum við áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta, ekki undir valdsvið stofnunarinnar.