Gengið var í dag frá sölu eignatryggðra skuldabréfa til fjármögnunar á Reginn atvinnuhúsnæði ehf. Það er dótturfélag Regins hf. Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að fjármögnunin er verðtryggð með jöfnum afborgunum til 30 ára og ber 3,85% fasta vexti. Gjalddagar vaxta og afborgana eru tvisvar á ári. Heimilt er að greiða upp lánið eftir 5 ár.

Lánið verður nýtt til uppgreiðslu óhagstæðri lána og lána sem falla á gjalddaga seinna á árinu. Heildarstærð skuldabréfaflokksins er 9,5 milljarðar og var sala á öllum flokknum kláruð í dag. Skuldabréf tengd fjármögnuninni verða skráð í Kauphöll Íslands, en Íslandsbanki verður umsjónaraðili skráningar.

Lánveitandi og útgefandi eignatryggðu skuldabréfanna er REG3A fjármögnun, fagfjárfestasjóður en rekstraraðili sjóðsins er ALDA sjóðir hf. Áætlaður ávinningur félagsins vegna lægri vaxtakjara er um 50 milljónir króna á ársgrundvelli.

Auk endurfjármögnunar Regins atvinnuhúsnæðis hefur einnig verið lokið við endurfjármögnun á dótturfélögum félagsins sem hýsa Egilshöll og Smáralind og er þetta því skref í að ljúka við endurfjármögnun samstæðu Regins hf.