Miklar hækkanir hafa verið í Kauphöllinni það sem af er degi, en úrvalsvísitalan hefur hækkað um 3,04 þegar þetta er skrifað. Velta dagsins er 1.828 milljónir króna.

Icelandair hefur hækkað mest, eða um 4,43% í viðskiptum sem nema 374 milljónum. Marel hefur hækkað næst mest, eða um 3,58% og Eik hefur hækkað um 3,5%. Öll félögin í kauphöllinni hafa hækkað í viðskiptum dagsins.