Miklar hækkanir hafa verið á helstu vísitölum á Wall Street. Er það rakið til þess að japönsk stjórnvöld hafa ákveðið að veikja jenið sem hefur verið sögulega gríðarlega sterkt undanfarið.

Hlutabréf í Japan hækkuðu einnig þegar tilkynnt var um þessa fyrirætlan stjórnvalda.

Helstu vísitölur hafa hækkað um 1-1,8% það sem af er degi.