Hlutabréf hafa lækkað mikið í verði í morgun í Evrópu.

CAC vísitalan í París hefur lækkað um 2,67%. FTSE í London hefur lækkað 2,2%, þýska DAX vísitalan hefur lækkað um 4,05%. Hlutabréf í rekstrarfélagi þýsku kauphallarinnar, Deutsche Boerse, hefur lækkað mest í Þýskalandi eða um 7,4%.