Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq á Íslandi lækkaði um 3,05% í viðskiptum dagsins og endar í 1.645,40 stigum.

Hlutabréf í öllum félögum á markaði lækkuðu eða héldust í stað, annan daginn í röð.

Mesta lækkun var á bréfum Icelandair Group, en þau lækkuðu um 4,89% í 1,3 milljarða króna viðskiptum. Gengi hlutabréfa í Marel lækkuðu einnig um 4,24% í 359 milljón króna viðskiptum. Bréf í Reitum fasteignafélagi lækkuðu um 2,17% í tæplega 123 milljón króna viðskiptum.

Af félögum utan úrvalsvísitölunnar, lækkaði Reginn h.f. mest eða um 2,25% í tæplega 79 milljón króna viðskiptum.