Hlutabréf hafa lækkað mikið í Kauphöllinni í Mílanó, Borsa Italiana.
FTSE Italiana vísitalan hefur lækkað um 2,65% í dag. Bankar lækkuðu mest, Intese Sanpaolo lækkaði um 5,13%, Banco Populare um 5,37%, Mediobanca um 4,93% Ubi Banca um 5,68 og UniCredit hefur lækkað um 4,30%.
Athygli vekur að mesta hækkunin í dag var á hlutabréf í verktakafyrirtækinu Impregilo sem byggði Kárahnjúkavirkjun. Hækkunin nam 1,41%