Miklar verðlækkanir hafa orðið á Ameríkuflugi. Í dag má bóka farmiða héðan með Delta til New York komast á áfangastað fyrir tæpar 55 þúsund krónur. Delta býður einnig ódýr tengiflug til Boston, Orlando og vesturstrandarinnar. Til samanburðar kostuðu í júní síðastliðnum ódýrustu farmiðarnir með Delta til New York í september 71.245 krónur. Ódýrustu farmiðarnir hjá bandaríska félaginu hafa því lækkað um 24 prósent milli mánaða. Þessu greinir Túristi frá . Ódýrasta farið með Icelandair til New York í september er hins vegar rúmar 80 þúsund krónur.

Til Boston fyrir 740 krónur aukalega

Frá JFK flugvelli í New York flýgur Delta áfram til fjölda áfangastaða í N-Ameríku og þeir sem nýta sér Íslandsflug félagsins komast því áfram með félaginu innan N-Ameríku á einum miða. Í dag er hægt að finna töluvert úrval af flugmiðum með Delta frá Keflavík til Boston, með millilendingu í New York, á 54.965 kr. Til samanburðar eru ódýrustu miðarnir til Boston með Icelandair á tæpar 69 þúsund krónur í september og sá sem flýgur með WOW og innritar farangur borgar að lágmarki um 63 þúsund krónur. Úrvalið af þessum ódýrum miðum takmarkast við nokkrar dagsetningar hjá íslensku félögunum, meðan þær eru miun fleiri hjá Delta. Bandaríska félagið býður einnig oftast betur en þau íslensku til Washington og í september verður hægt að komast til Orlando á tæpar 70 þúsund krónur með Delta sem er um 20 þúsund krónum minna en lægstu fargjöld Icelandair til Flórída kosta.

Vesturströndin fyrir minna

Ekki er beint flug héðan til stórborganna Los Angeles og San Francisco og farið þangað kostar alla jafna að lágmarki hundrað þúsund krónur. Hjá Delta er hins vegar hægt að fá miða þangað í september á 95 þúsund krónur en miðinn til Honalulu kostar 131 þúsund. Fyrir sömu upphæð er einnig hægt að komast til Ríó í Brasilíu.