Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað ört undanfarna daga. Við lokun í gær var verðið á hrávörumarkaði í London 77,24 dollarar á tunnu, en lækkaði þó aðeins í morgun og var fyrir stundu komið í 76,44 dollara. Í New York var verðið við lokun í gær skráð 79,12 dollara á tunnu, en var komið niður í 78,32 dollara fyrir nokkrum mínútum.