Fjárfestingafélagið Milestone ehf. hefur gengið frá lánasamningi við alþjóðlega fjárfestingabankann Morgan Stanley. Um er að ræða ríflega 16,5 milljarða lán til þriggja ára, segir í tilkynningu.

Lánið er veitt í tengslum við endurfjármögnun félagsins. Lántaka þessi kemur í kjölfar erlendrar fjámögnunar Milestone á síðastliðnu ári þegar annar alþjóðlegur fjárfestingabanki tók þátt í fjármögnun Milestone vegna kaupa á 100% hlut félagsins í Sjóvá.

Í tilkynningunni segir að samstarfið við Morgan Stanley er mjög þýðingarmikið skref og markar þáttaskil í fjármögnun á Milestone.

Rekstur og efnahagur Milestone hefur vaxið hröðum skrefum á undanförnum árum samhliða því sem unnið hefur verið að breytingum á skipulagi félagsins og mótun skýrrar fjárfestingastefnu.

Helstu eignir félagsins eru ríflega 20% hlutur í Glitni hf, tryggingafélagið Sjóvá hf. og 85% hlutur í fjárfestingabankanum Askar Capital.