SJ1 hefur fært bréf í Mosaic Fashions yfir til móðurfélagsins Milestone fyrir 276 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 16.508.584 hluti og er gengi viðskiptanna 16,7 krónur á hlut, sem er markaðsgengi.

Eftir viðskiptin á SJ1 581.395 hluti í Mosaic Fashions, sem er um 9,7 milljónir krónur að markaðsvirði.
Eftir viðskiptin eiga fjárhagslega tengdir aðilar 33.017.168 hluti í félaginu, sem er um 551 milljón króna að markaðsvirði.

SJ1 er dótturfélag Sjóvá-Almennra trygginga en það er í eigu Milestone. Milestone er í eigu Karls Wernerssonar og fjölskyldu.