Fjárfestingafélagið Milestone er nú að reyna að selja hlut sænska fjármálafyrirtækisins Moderna Finance Group í D. Carnegie & co.

Þetta kemur fram á vef Dagens Industri og er haft eftir aðilum tengdu málinu en Moderna er í eigu Milestone.

Þá hefur blaðið eftir Mattias Bjoerk, fjármálastjóra Moderna að ekki standi til að selja aðrar eignir félagsins. Aðrar eignir þess eru meðal annars íslensku félögin Askar Capital og Sjóvá.