Í ársreikningi Milestone sem kynntur var í gær kemur fram að fyrirtæki hafi ekki í hyggju að minnka hlut sinn í Glitni.

„Þrátt fyrir krefjandi aðstæður á hlutabréfamarkaði þá hefur Milestone mikla trú á fjárfestingum félagsins í skráðu félögunum Glitni og Carnegie og til marks um það hefur Milestone ekki í hyggju að minnka við hlut sinn í félögunum á árinu," segir í tilkynningu frá Milestone.

Þá er gert ráð fyrir því að Milestone selji á þessu ári ýmiss fasteignaverkefni og hluta í óskráðum félögum sem ekki eru í fjármálastarfssemi.

Þá segir einnig í ársuppgjöri Milestone að félagið sé vel í stakk búið til að mæta mögulegum óróa á fjármálamarkaði þar sem verulega hafi dregið úr áhættu í rekstri fyrirtækisins á árinu sem leið.