Milla Ósk Magnúsdóttir
Milla Ósk Magnúsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í stað Hafþórs Ede Hafþórsson sem verið hefur aðstoðarmaður ráðherrans frá desember 2017.

Milla hefur síðastliðinn áratug starfað hjá Ríkisútvarpinu, síðustu ár sem fréttamaður en áður sem aðstoðarframleiðandi frétta og dagskrárgerðarkona í útvarpi og sjónvarpi.

Þá var hún varaformaður Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu. Milla er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur þar sem hún sérhæfði sig í fjölmiðlarétti, auk þess að leggja áherslu á persónuupplýsinga- og vinnurétt. Hún mun hefja störf í ráðuneytinu þann 10. desember.