Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll jókst um 7,2% á fyrri helmingi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Flugvélum í almennu flugi fjölgaði um 13% en viðkoma herflugvéla hefur minnkað um 45% að því er kemur fram í frétt á heimasíðu FLE.

Hluti þess skýrist af brottför varnarliðsins en nokkuð var jafnan um millilandaflug því tengdu. Farþegafjöldi jókst á sama tíma um 8,5% eða úr 240 þúsund í 257 þúsund og vöruflutningar um 3,4%. Tíu flugfélög stunda farþegaflug á Keflavíkurflugvelli í sumar og þrjú félög annast vöruflutninga. Auk þess er nokkuð um að erlendar vöruflutningaflugvélar hafi þar viðkomu.