Milljarðamæringur frá Kaliforníu, Ron Burkle að nafni, hefur stigið fram á sjónarsviðið sem hugsanlegur keppinautur Ruperts Murdoch um að ná yfirráðum í Dow Jones útgáfufélaginu, sem meðal annnars gefur út dagblaðið Wall Street Journal. News Corp., fjölmiðlafélag í eigu Murdoch, lagði fram yfirtökutilboð í Dow Jones í síðasta mánuði, sem hljóðaði upp á fimm milljarða Bandaríkjadala og var um 65% yfir markaðsvirði félagsins. Fréttir af hugsanlegri innkomu Burkle í slaginn um Dow Jones koma degi eftir að Murdoch og fyrirtæki hans hittu í fyrsta skipti fulltrúa á vegum Bancroft fjölskyldunnar, sem á 24% hlut í Dow Jones og fer með 62% atkvæða í félaginu, til að ræða tilboð hans.
Í frétt dagblaðsins New York Times er sagt að stærstu starfsmannasamtök Dow Jones hafi átt frumkvæði af því að leita til Burkle. Samtök starfsmanna útgáfufélaga og fjármálaráðgjafi þess, Ownership Associates, höfðu samband við einkafjárfestingarfyrirtæki Burkle, Yacapia Companies, fyrir nokkrum dögum og hefur blaðið eftir heimildarmönnum sem vel þekkja til málsins að Burkle hafi sýnt mikinn áhuga á því að aðstoða samtökin við að finna annan valkost við Murdoch til að leggja fram tilboð í Dow Jones. Hins vegar er enn ekki fyllilega ljóst hvort Burkle sjálfur sé reiðubúin að yfirtaka útgáfufélagið.
Burkle hefur náin tengsl við Clinton fjölskylduna - hann hefur til dæmis nú þegar veitt mikla fjármuni í kosningasjóð Hillary Clinton - og auðgaðist í viðskiptum sínum á stórvörumörkuðum. Það er einungis nýverið sem Burkle hefur farið að sýna dagblaðastarfsemi einhvern áhuga. Í frétt Financial Times segir að Burkle sé einn af nokkrum öðrum milljarðamæringum, meðal annars Warren Buffet, sem starfsmannasamtök Dow Jones hafi sett sig í samband við undanfarna daga og vikur til að koma í veg fyrir að Murdoch takist ætlunarverk sitt að yfirtaka félagið. Áhyggjur samtakanna eru fyrst og fremst fólgnar í því að þau óttast að Murdoch muni skipta sér í of miklu mæli af fréttamennsku Dow Jones, með það að leiðarljósi að vinna að pólitískum og viðskiptalegum markmiðum sínum.
Tíminn er aftur á móti að verða knappur fyrir samtökin. Fundi Murdoch með fulltrúa Bancroft fjölskylduna í gær var lýst sem "uppbyggilegum" og ræddar voru hugsanlegar leiðir til að "tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði" Wall Street Journal og annarra dagblaða sem Dow Jones er eigandi að.
Ef Burkle lætur verða af því að blanda sér í slaginn um Dow Jones við Murdoch yrði það ekki í fyrsta skipti sem þessir menn eiga í átökum á opinberum vettvangi. Á síðasta ári lenti þeim saman í kjölfar þess að Burkle sakaði slúðurdálkahöfund New York Post - sem er í eigu fyrirtækis Murdoch - um að hafa krafst peningagreiðslu frá honum í skiptum fyrir jákvæða umfjöllun um hann á slúðursíðu blaðsins.