Stjórn Sparisjóðsins í Keflavík og félög tengd stjórnarmönnum fengu lánaðar umtalsverðar fjárhæðir áður en sjóðurinn féll. Staða skuldar stjórnarinnar og tengdra félaga nam tæplega tveimur milljörðum króna í lok árs 2007 og rúmlega þremur milljörðum króna í lok árs 2008. Skuldir stjórnarmanna við sjóðinn námu því um 55 prósentum af eigin fé sjóðsins í lok árs 2008 þegar eigið fé sjóðsins var um 5,4 milljarðar samkvæmt ársreikningi.
Fréttastofa Ríkissjónvarpsins hefur fjallað ítarlega á undanförnum dögum um skýrslu PriceWaterhouseCoopers sem gerð var um stjórn Sparisjóðsins í Keflavík. Þar var bent á að reglur sjóðsins hafi verið brotnar, til að mynda þegar viðskiptaerindi stjórnarmanna voru ekki borin undir stjórn sjóðsins. Samkvæmt fréttum Ríkissjónvarpsins námu lán til stjórnarmanna sparisjóðsins og félaga þeim tengdum um milljarði króna þegar Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur Sparisjóðs Keflavíkur í apríl 2010. Umtalsverðar afskriftir virðast því hafa átt sér stað á þessu tímabili.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.