Josh Harris, eigandi körfuboltaliðsins Philadelphia 76ers, hefur fest kaup á liðinu New Jersey Devils. Tilkynnt var um kaupin í dag.

Harris er eigandi eins stærsta fjárfestingafélag heims. Hann greiddi 320 milljónir dala, 38 milljarða króna, fyrir Devils og afsal af Prudential íþróttahöllinni, segir USA Today.

Stjórn NHL, amerísku hokkýdeildarinnar, samþykkti kaupin í gær.