Mjög mikil viðskipta hafa verið með bréf Icelandair Group í dag. Velta með bréf í fyrirtækinu nemur núna á hádegi 956 milljónum króna. Það er mun meiri velta en með bréf í öðrum skráðum félögum. Næst á eftir kemur N1, en velta með bréf fyrirtækisins nemur 54 milljónum. Bréf Icelandair hafa hækkað um 0,78% og eru nú 19,30 á hlut. Gengi bréfa hefur ekki verið hærra síðan í september 2008.

Eins og VB.is greindi frá í morgun var brotið blað í sögu Icelandair á síðasta ári þegar farþegar í millilandaflugi voru 2.257.305 talsins. Það er 12% fleiri en árið 2012 og hafa þeir aldrei verið fleiri.