Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,06% í dag og endaði í 1.186 stigum. Gengi bréfa N1 hækkaði um 1,31%, TM um 0,42% og Össurar um 0,28%. Hins vegar lækkaði gengi bréfa Icelandair um 2,18%, Marels um 1,21% og Haga um 0,82%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 2.361,9 milljörðum króna. Mest var veltan með bréf Icelandair, eða um 1.099 milljónir króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,08% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,19% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,15%. Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,02%.