Toyota bílaframleiðandinn tilkynnti í gær að hafa náð þeim árangri að selja fleiri en eina milljón tvinnbíla. Samkvæmt upplýsingum frá bílaframleiðandanum höfðu 1,047 milljónir bíla selst í maílok. Þriðjungur seldist í Japan og restin erlendis. Eftirspurn eftir tvinnbílum hefur aukist mikið að undanförnu vegna hins háa orkuverðs og aukinnar meðvitundar neytenda um umhverfismál.