Skiptum er lokið í félaginu Kísill Ísland ehf. Ekkert fékkst upp í kröfur en 45 milljónum króna var lýst í búið, en skiptum lauk í desember, að því er fram kemur í Lögbirtingarblaðinu.

Félagið var stærsti hluthafi United Silicon þegar félagið hóf starfsemi en Arion banki tók hlutinn yfir og gekk að veðum sínum í félaginu eftir að kísilverið fór í greiðslustöðvun árið 2017. Þetta er þriðja félagið tengt United Silicon sem lauk skiptum í desember.

Kíslil III slhf. lauk skiptum í byrjun desember. Félagið var næst stærsti hluthafi United Silicon þegar félagið fór í greiðslustöðvun, og var að mestu í eigu íslenskra lífeyrissjóða og Arion banka, sem fjárfestu í kísilverinu. 731 milljónum var lýst í búið en ekkert fékkst upp í kröfur.

Þá lauk skiptum í félaginu Brimstone ehf., þann 4. desember, sem var í eigu Magnúsar Garðarssonar, stofnanda United Silicon. Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur en þær námu 628 milljónum króna.

Sjá einnig: 23 milljarða kröfur í United Silicon

United Silicon fór í greiðslustöðvun í ágúst 2017 og var lýst gjaldþrota í ársbyrjun 2018. Arion banki, sem var stærsti lánveitandi verkefnisins, tók verksmiðjuna yfir og hefur síðan þá unnið að endurbótum á henni. Bankinn afskrifaði síðasta haust 1,5 milljarða króna vegna erfiðra aðstæðna á kísilmörkuðum, en kísilverð hefur verið í sögulegum lægðum í vetur.

Þá standa yfir dómsmál gegn Magnúsi Garðarssyni, sem einnig hefur verið kærður til héraðssaksóknara vegna meints fjárdráttar úr United Silicon.