Afli skipa HB Granda á nýliðnu ári nam alls tæplega 188 þúsund tonnum og aflaverðmætið var um 16,7 milljarðar króna. Þetta er um 5,5% samdráttur frá árinu á undan þegar aflinn var tæplega 199 þúsund tonn og aflaverðmætið um 17,7 milljarðar króna.

Aflasamdrátturinn skýrist aðallega af dræmri síldveiði í lok ársins, segir á vef HB Granda . Þegar á heildina er litið voru uppsjávarveiðiskipin með rúmlega 135 þúsund tonna afla í fyrra en hátt í 149 þúsund tonn á árinu 2012. Aflahæst uppsjávarskipanna var Ingunn AK með rúmlega 47.100 tonna ársafla og aflaverðmæti upp á tæpar 1.769 milljónir króna.

Af frystitogurunum var Örfirisey RE aflahæsta skipið með 9.525 tonn og einnig með mesta aflaverðmætið, tæplega 2.271 milljón króna.

Ásbjörn RE var aflahæstur ísfisktogaranna með 6.390 tonna afla en Sturlaugur H. Böðvarsson AK skilaði mestu aflaverðmæti, tæplega 1.129 milljónum króna.

HB Grandi hætti að gera út frystitökurnar Venusi HF um mitt síðasta ár og var það skip síðan selt í lok ársins. Þá var Helgu Maríu AK breytt í ísfisktogara í Póllandi og var skipið frá veiðum í fleiri mánuði vegna þeirra breytinga.